17.11.2009 | 10:38
Kári til fyrirmyndar
Það er þörf á að vekja athygli á ummælum Kára Stefánssonar í meðfylgjandi frétt. Hann dregur réttilega fram að það var hann sem bar ábyrgð á rekstrinum og reynir ekki að kenna öðrum um.
Þetta mætti verða mörgum Íslendingnum þörf ádrepa, sér í lagi almenningi sem oft á tíðum reisti sér hurðarás um öxl í brjálæðislegu neysluæði og vildi síðan kenna öllum öðrum en sjálfum sér um það hvernig fór.
Kári áfram hjá ÍE | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2009 | 16:57
Verndum tungumálið
Vinstrimönnum er ákaflega tamt að ræða um sameignir þjóðarinnar og þegar þeir krefjast ríkisvæðingar þessa og hins er gjarnan vísað til þess að um sameign þjóðarinnar sé að ræða. Frjálshyggjumenn hafna tali um þjóðareignir, hvað þá þjóðarvilja.
Íslenska þjóðin á þó eina sameign og það er tungumálið. Tungumál sem haldist hefur lítt breytt í um eitt þúsund ára skeið. Þetta er hin eina og raunverulega sameign íslensku þjóðarinnar. Sameign sem hlúa skal að, enda getur hugsun í texta aldrei verið skýr og tær nema málfarið sé hreint og sem réttast.
Verðlaun fyrir gott starf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2009 | 14:15
Lögleiðum kannabisefni
Skilorð fyrir kannabisræktun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2009 | 14:12
Hugmynd að niðurskurði
Útgáfa sérstaks fréttarits ríkisskattstjóra er enn eitt dæmið um bruðlið í opinberum rekstri. Það er nógu slæmt að ríkið vasist í rekstri ljósvakamiðla, að það þurfi ekki að ráðast einnig í útgáfu tímarita. Víða má skera niður.
Þær ríkustu skera sig úr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2009 | 20:43
Ofbeldi vinstrimanna
Enn heldur sósíalistastjórnin áfram að berja á almenningi. Vinstrimenn vita fátt verra en að duglegir menn njóti ávaxta af sinni vinnu - ónei allt skal fara í ríkishítina. Hér er beinlínis verið að nota skattkerfið til að búa til lágtekjusamfélag. Aðgerð sem þessi mun ein og út af fyrir sig hafa í för með sér fólksflótta dugmikils fólks. Gleymum því að hálfmilljón í mánaðarlaun fyrir skatta eru ekki háar tekjur. Spáð er hraðminnkandi kaupmætti á næsta ári og munu aðgerðir stjórnvalda koma mjög illa við þá sem þurfa að bæta við sig vinnu til að geta greitt afborganir af lánum. Skattahækkanirnar eru tilræði við fólkið í landinu.
Nær væri að gera Ísland að skattaparadís og fella algjörlega niður skatt á launatekjur. Báknið skal burt, skera kal niður í rekstri hins opinbera um samsvarandi hlutfall. Við þvílíka breytingu yrði eftirsóknarvert að búa hér á landi, en því miður verður þetta ekki reyndin, því núverandi stjórnvöld þola ekki að fólk njóti frelsis.
Alltaf eru sósíalistar samir við sig í sínu ofbeldi. Rétt er að huga að því nú þegar rétt tuttugu ár eru liðin frá falli Berlínamúrsins og falli versta harðstjórnarveldis mannskynssögunnar sem fylgdi í kjölfarið. Harðstjórnarveldi sem ýmsir af núverandi ráðherrum tilbáðu.
9.11.2009 | 19:12
Lengir í kreppunni
Hærri skattar draga úr bæði neyslu og sparnaði. Þar með dregst saman fjárfesting í atvinnulífinu og hægir á verðmætasköpun og sköpun nýrra starfa. Kreppan verður því langvinnari og erfiðari fyrir Íslendinga. Rétt væri að stjórnvöld lækkuðu skatta og byrjuðu að skera niður. Hvar má byrja:
20 milljarðar í tónlistar- og ráðstefnuhúsi.
Ríkið þarf ekki að reka 5 ríkisháskóla (HI, HR, Bifröst, HA og Landbúnaðarháskólann)
Utanríkisþjónustan, á ekki Svavar hvort sem er að leysa öll mál og uppgjöf gegn ESB?
Heilbrigðiskerfið, ef setja á 10 prósent skatt á meðaltekju og efnameira fólk þá ætti miklu frekar að færa kostnað af grunnþjónustu í heilbrigðiskerfinu yfir á einstaklinga. Ríkið, skattgreiðendur, getur þá áfarm greitt fyrir þá sem ekki hafa efni á því og dýrir meðferðir og aðgerðir.
Drögum uppgjöfina til ESB til baka, 2 til 4 milljarðar.
47% skattur á launatekjur? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.11.2009 | 10:32
Hvar er Svavar?
Stefán verður aðalsamningamaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.10.2009 | 19:30
Skattgreiðendur eiga að fá að kjósa
Hneyksli á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2009 | 20:31
Góður Bjarni!
Bjarni Benediktsson er maðurinn sem á með réttu að vera forsætisráðherra Íslands. Maður sem þorir. Maður með bein í nefinu og ber höfuðið hátt, ólíkt þeim undirlægjum sem nú ráða ríkjum í stjórnarráðinu. Íslenska þjóðin á betra skilið en samstjórn vinstriflokkanna, sem ætlar að færa lífskjör hér á landi aftur um áratugi.
Ísland stóð eitt í hvirfilbylnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2009 | 13:51
Hvað með íslenska landráðamenn?
Jan Guillou var njósnari KGB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |