Færsluflokkur: Bloggar

Ríkisreknir stjórnmálaflokkar

Í öllu þessu málæði um styrki til flokka virðast allir líta fram hjá því að flokkarnir eru reknir fyrir opinbert fé - það er með öðrum orðum búið að "ríkisvæða" flokkakerfið. Telja menn að það hafi engin áhrifa á hagsmunabaráttu flokkanna? Að undanförnu hefur berlega komið í ljós að stjórnmálaflokkarnir telja sér umfram allt skylt að gæta hagsmuna ríkisvaldsins, þeir eru varðhundar opinberra starfsmanna. Með hliðsjón af þessu er til muna eðlilegra að stjórnmálaflokkar njóti styrkja einkafyrirtækja í ríkum mæli. Það er hollara fyrir þjóðfélagið að stjórnmálaflokkarnir eigi eitthvað undir atvinnulífinu í landinu heldur en að þeir séu bara einn angi ríkisvaldsins.
mbl.is Styrkir borgaðir til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

List í boði ríkisins

Ástæður þær sem gefnar eru í fréttinni fyrir því að greiða 10 milljón krónur af almannafé fyrir eina ljósmynd eru merkilegar: Það má ekki missa íslenska myndlist úr landi, við verðum að vera "samkeppnisfær" og borga þar af leiðandi meira vegna hnattvæðingarinnar!

Hvers vegna er það áhyggjuefni að íslenskir myndlistarmenn selji verk sín til erlendra manna og safna sem hafa efni á þeim? Myndi ekki hróður þeirra aukast eftir því sem að verk þeirra berast víðar um heiminn? Hvers vegna er það íslenska ríkisins að standa í samkeppni við aðra listaverkaunnendur?


mbl.is Dýrasta verkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sósíalistar samir við sig

Með því að ákveða að hitta ekki andlegan leiðtoga Tíbeta að máli hafa íslenskir ráðamenn lýst yfir velþóknun sinni á stjórnvöldum í Peking, sem eru þau grimmúðlegustu í veröldinni. Það hvernig ráðherrar sósíalistaflokkanna og flokksbróðir þeirra á Bessastöðum hunsa Dalai Lama verður að skoðast í ljósi lotningar þessa fólks fyrir austrænum alræðisstjórnum hér á árum áður.


mbl.is Dalai Lama í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kerfið sér um sína

Hinir ríkisvæddu stjórnmálaflokkar geta hugsað til þess að skera niður opinber útgjöld. Það gæti bitnað á ríkisrekstri. Á sama tíma eru fyrirtækin og heimilin í landinu látin blæða enn meira til að halda uppi tugþúsundum opinberra starfsmanna.

Leiðir til sparnaðar í ríkisrekstri eru fjölmargar. Fækka mætti sendiráðum í tvö til þrjú, leggja niður Umferðarstofu, sömuleiðis Varnarmálastofnun, afnema mætti fæðingarorlof feðra og svo má lengi telja.


mbl.is Bensínlítrinn í 181 krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sósíalískur raunveruleiki

Í raun kemur þessi hækkun ekki á óvart í ljósi niðurstaða síðustu kosninga. Þjóðin kaus enda yfir sig sósíalisma sem hún sá fyrir sér í rósrauðum bjarma; öll grimmdarverk eins og þessi skilin undan í kosningaauglýsingum. Skattahækkanir voru, eru og verða alltaf megineinkenni sósíalistastjórna. Þetta er aðeins upphafið af því sem koma skal.
mbl.is Annríki í vínbúðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúaráróður

Með nýrri stjórnarskrá Evrópusambandsins verður yfirstjórn sjávarútvegsmála að fullu í höndum sambandsins. Þetta vita menn. Með inngöngu Íslands í Evrópusambandið mun þjóðin fyrirgera rétti sínum til stjórnar fiskveiða um alla framtíð. Það hefur ekkert komið fram sem hrekur þessa staðreynd. Umfjöllun fjölmiðla um þetta mál á meira skylt við trúaráróður en upplýsta umræðu.Við sem aðhyllumst hugmyndir um takmarkað ríkisvald getum með engu móti fallist á ennþá umfangsmeira yfirþjóðlegt vald. Þeir sem unna lýðræði ættu að velta fyrir sér hvaðan embættismenn Evrópusambandsins sækja umboð sitt. Bókhald sambandsins hefur ekki hlotið áritun löggiltra endurskoðenda síðastliðin 14 ár. Það segir sína sögu um óráðsíuna á þeim bæ.
mbl.is Hægt að ná samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin eldflaugavísindi

Það er engin þörf á að stofna til fundar í Þjóðminjasafninu til þess að ræða þessi mál þar sem þess konar tilstand kostar peninga. Spurningunni sem leiðtogar vorir leita svara við er einfalt: lækkun vörugjalda og/eða skatta á einstaklinga og fyrirtæki. Lækkun vörugjalda leiðir beint til aukinnar eftirspurnar vöru og lægri skattar leiða til þess að fólk hefur meira á milli handanna. Verslun glæðist og munu hjól atvinnulífsins taka fyrr við sér. Þetta er ekkert flókið. Áhugasömum bent á Laffer-kúrvuna sem sýnir samband skattprósentu og tekna ríkissjóðs: http://upload.wikimedia.org/wikipedia/en/3/36/Laffer-Curve.svg
mbl.is Auka tekjur og skera niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsendur Framfara

Stjórnmálamenn tala margir um velferð og vinnu en fáir sem engir um framfarir. Of mikil áhersla er lögð á að skapa sem flestum vinnu en lítið sem ekkert rætt um að búa til sem mest verðmæti fyrir sem minnstan tilkostnað. Það tekur 10 verkamenn marga daga að grafa jafn stóran og langan skurð og það tekur einn einstakling á góðri vinnuvél einn dag að vinna. Með auknum framförum nýtist vinnuafl betur til verðmætasköpunar þar sem færri hendur þarf til að búa til sömu verðmæti og áður.

Framfarir auka fjölbreytni og fjölga möguleikum sem við getum starfað við og auka líkurnar á því að einstaklingar finni sér eitthvað áhugavert og skemmtilegt til að taka sér fyrir hendur. Framfarir auka því verðmætasköpun og bæta þar með þau gæði sem standa okkur til boða. Í þessu samhengi má skoða kreppuna í kringum 1918 eftir fyrri heimstyrjöldina en þann vetur voru gífurlegar frosthörkur, spænskaveikin og vöruþurð í landinu. Fjöldi Íslendinga dó á þeim tíma bæði af völdum spænskuveikinnar en ekki síður af völdum skorts á húsaskjóli, aðbúnaðar og matvæla. Kreppan í dag er munaðarkreppa miða við þær sem áður hafa verið og er það allt miklum framförum að þakka.

Framfarir eru ekki verk fárra útvaldra, heldur félagslegt fyrirbrigði, flókið ferli margra og ólíkra einstaklinga. Megin forsendur framfara felast ekki í miðstýringu og stofnanaveldi, heldur fjölbreytileika, samskiptahæfni og samanburði af margvíslegu tagi. Frjálshyggja og frjálst og opið hagkerfi er því ein besta leiðin til að tryggja forsendur framfara. Skýrasta dæmið er flóð nýsköpunarfyrirtækja frá frjálsum hagkerfum t.d. Bandaríkjunum en þaðan höfum við fengið Google, Apple, Facebook og fjöldan allan af öðrum tækifyrirtækjum, framfarir í læknavísindum, verkfræði og öllum öðrum sviðum. Lausnarorðið er þá þrátt fyrir allt FRELSI


Best geymdir á Þjóðminjasafni

Sósíalistaflokkarnir tveir sem nú halda um stjórnartauma boða úrelta hugmyndafræði. Þeir eiga því best heima á Þjóðminjasafninu.
mbl.is Fundað á Þjóðminjasafni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofstækisfullur saksóknari

Það eru ömurlegt að sjá íslenska blaðamenn reyna að hæla hinum ofstækisfulla saksóknara Vinstri grænna, sem lýsir yfir sekt manna án þessa hafa rannsakað mál. Norska frúin grefur undan almennum mannréttindum með málflutningi sínum.


mbl.is Joly snuprar Sarkozy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband