Vúduhagfræði vinstrimanna

Það lifir lengi í þeim leiða misskilningi að það sé hlutverk ríkisins að skapa störf. Það er vissulega rétt að ríkið getur skapað störf en þá er það í langflestum tilvikum gert á kostnað verðmætasköpunar og framtíðar eyðslu, sparnað.

Hækkun skatta þýðir minni sparnaður og þar með minni fjárfestingar í atvinnugreinum sem þýðir minni verðmætasköpun og færri störf. Ríkið er ekki lausn á vandamálum kreppunnar ríkið er orsökin. Enginn banki eða fjármálastofnun hefði stækkað jafn mikið og hratt ef ekki hefði verið fyrir ríkisábyrgðir á þeim hjá seðlabönkum eða ríkisábyrgðir á húsnæðislánum. Stöndum saman í því að koma ríkinu út úr fjármálakerfi heimsins og rjúfum ábyrgð skattgreiðenda á einkafyrirtækjum. Reki menn fyrirtæki sín í þrot skulu þeir bera af því allan halla ekki skattgreiðendur.

Svíum væri hollast að lækka skatta enn frekar, draga úr styrkjum og byrja að skapa verðmæti á ný.


mbl.is Sænska stjórnarandstaðan vill hækka skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir eru búnir að missa Volvo og Saab.

Þetta sósíaldemokratí kostar.

Aumingja þeir ef þeir kjósa yfir sig Monu Sahlin. Þá á aldeilis eftir að sannast enn einu sinni að sumir grísir eru jafnari en hinir!

jonasgeir (IP-tala skráð) 3.5.2010 kl. 21:36

2 identicon

Ef ég man rétt þá keypti sænska ríkið Saab á morðfjár. Þetta glæsilega fyrirtæki er því orðið að soltu ríkisfyrirtæki með öllu sem því fylgir. Kannski fá þeir teikningar af gömlu Lödunni til framleiðslu fyrir milli og lágstéttinna í Svíþjóð.

Landið (IP-tala skráð) 3.5.2010 kl. 23:26

3 identicon

Það gleymdist að geta þess að SVD (svergiedemokratar) sitja sennilega á vogarskálinni eftir valið með 9% fylgi en það er búið að spá þeim í skoðannakönnun.  En þeir hafa blokkerast út úr fjölmiðlum.  Og  það sem við köllum fjórflokkana hér,  kallast sjöstjarnan í Svíþjóð. Svo það er við rammann reim að draga.  Svo eftir kosningar verður bara einn flokkur í stjórnarandstöðu og það verða SVD.  Því sjöstirnið hefur hótað því að heldur vinna meðstalinistum en SVD. Svo þetta verður spennandi.

J.þ.A, (IP-tala skráð) 4.5.2010 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband