Sá sem þetta skrifar á erfitt með að skilja þá sem styðja ríkisstjórn Íslands, réttnefnd "versta ríkisstjórn Íslandssögunnar".
Þessi ríkisstjórn virðist vera upptekin af öllu nema því sem skiptir máli. Hagkerfið er ennþá að dragast saman, skuldir þess að vaxa og tækifærum fækkar. Þau tækifæri sem skjóta upp kollinum er kæfð í fæðingu, og það sem gengur vel er bundið inn í spennitreyju reglugerða og hækkandi skatta.
Enn mælist stuðningur við ríkisstjórnina. Hana styðja ennþá hörðustu stuðningsmenn ríkisstjórnarflokkanna, sem er alveg sama hvað verður um Ísland, bara á meðan Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn er haldið í kuldanum.
Stjórnarandstaðan er líka veik og í felum. Ef einhver þekkti bara til íslenskra stjórnmála í gegnum ummæli íslenskra þingmanna mundi viðkomandi sennilega trúa því af einlægni að á Íslandi væru bara vinstrimenn, og menn sem þegja.
Fleiri og fleiri eru að gefast upp á vinstristjórninni, meira að segja fleiri og fleiri þingmenn stjórnarflokkanna. Þráinn varð vinstri-grænn, Ásmundur varð framsækinn. Lilja og Atli misstu litinn, og Guðmundur gerði Samfylkingarmaður í felulitum. Rótið er mikið. Ríkisstjórnin hangir saman á bláþræði valdagræðgi, og veit að hún verður kosin út í hafsauga í næstu kosningum, sama hvenær þær nú verða, og þær verða því haldnar eins seint og hægt er.
Hvað er verra en stjórnmálamaður án hugsjóna? Svarið gæti kannski verið: Stjórnmálamaður sem forðast eigin skoðanir.
Þegar ríkisvaldið ætlar sér að "leysa vandamálin", þá magnast þau upp og verða verri.
Því lengri tíma sem tekur fyrir ríkisvaldið að draga úr afskiptum sínum og "björgunaraðgerðum", þeim mun verra verður ástandið.
Því miður eru stjórnmálamenn yfirleitt þeirrar gerðar að vera fólk "aðgerða", sem vill "gera eitthvað". Þeir geta því ekki hugsað sér að klippa á afskipti hins opinbera. Þvert á móti, þá vilja þeir yfirleitt að sjúklingurinn sem hagkerfið er orðið að fái stærri og stærri skammta af lyfinu sem gerði hann veikan.
Það er því undir almenningi komið að krefjast aðgerðaleysis stjórnmálamanna. Stundum er heppnin með almenningi, og æðsti valdsmaður ríkisins fær heilablóðfall og getur ekkert aðhafst, og fyrir vikið fær markaðurinn svigrúm til að leiðrétta sig. En þegar heppnin er ekki til staðar, þá þarf markvissari kröfu frá almenningi um að halda stjórnmálamönnum frá hagkerfinu sem þeir eyðilögðu og vilja nú eyðileggja enn meira með víðtækum sósíalisma.
Tillögur um skattalækkanir eru góðra gjalda verðar. Þeim þarf að fylgja tillögur um mikinn niðurskurð á umfangi og kostnaði hins opinbera. Skattar þurfa að lækka, en útgjöld ríkisins þurfa að lækka enn meira og svo mikið að svigrúm verði til að greiða niður skuldir hins opinbera hratt.
En það er ekki nóg að taka kreditkortið af hinu opinbera. Afskipti þess af frjálsum viðskiptum og samskiptum þurfa líka að dragast saman. Markaður sem sér minni skattheimtu en aukið opinbert eftirlit er ekki frjálsari en sá sem borgar þunga skatta en fær að öðru leyti að leggja allt sitt undir dóm og eftirlit neytenda.  Þrællinn er ekki frjáls þótt hlekkirnir séu fluttir af hægri fæti hans og yfir á þann til vinstri.
Ef stjórnmálamenn vilja "leysa vandamálin", þá væri nærtækast fyrir þá að leggja til að frídögum þeirra verði fjölgað í 360 á ári.
Samfylkingin vill hafa krónuna í höftum til að láta evruna líta þeim mun betur út. Gjaldeyrishöftin eru pólitísk brella sem er ætlað að kvelja Íslendinga til stuðnings við evruna.
Efnahagsleg rök fyrir höftunum eru ekki til staðar, nema að því leyti að ef menn vilja flótta frá efnahagslegum veruleikanum, þá eru höftin gott tæki til þess. Íslendingar þurftu að aðlaga sig að breyttum kaupmætti krónunnar árið 2001 þegar fastgengisstefnunni var sleppt. Þá tók krónan dýfu, allt innflutt hækkaði í verði, allt útflutt varð að miklu fleiri krónum en áður, og eftir tvö eða þrjú misseri hafði rykið sest.
Íslenska krónan hefði að öllu jöfnu átt að fá að taka út svipaða aðlögun eftir hrunið. En hún fékk það ekki. Það sem í upphafi var af mörgum talin vera efnahagsleg en jafnframt tímabundin nauðsyn varð að varanlegri pólitískri brellu og fullnægingarmeðali fyrir þá sem tilbiðja opinbera haftastefnu og ríkismiðstýringu.
Samfylkingarráðherrar munu halda áfram að tala krónuna niður og evruna upp á meðan fjölmiðlamenn halda áfram að reka hljóðnema upp að þeim, og þeir munu berjast hart fyrir því að haftastefnunni verði haldið áfram, sama hvað tautar og raular. Seðlabanki Íslands hefur að öllum líkindum fengið þau pólitísku fyrirmæli að viðhalda höftunum til a.m.k. ársins 2013 þegar Samfylkingin verður í seinasta lagi kosin út í hafsauga. Öllum árum er róið að því að sópa Íslandi sem lengst í átt að Brussel á meðan.
Þetta sáu margir fyrir, og þetta er að rætast. Höftin eru brella, og hafa markmið sem koma heilsu hins íslenska hagkerfis ekkert við.
Geir Ágústsson
Þessi grein birtist áður í Morgunblaðinu 12. október 2011 og er aðgengileg áskrifendum að vefútgáfu blaðsins hér.
Atlagan að stjórnarskrárbundnum réttindum Íslendinga virðist engan endi ætla taka. Nú þegar hafa eignaréttindi tekið á sig stórkostlegt högg í gegnum skattkerfið. Frelsi til viðskipta er að miklu leyti háð því að skriffinnar hjá Seðlabanka Íslands heimili viðskiptin. Þeir sem stunda heiðarleg, en „svört“ viðskipti, eru eltir uppi af eftirlitsmönnum ríkisins og þeim stungið í steininn sem gera sig seka um að skiptast á vörum og þjónustu án þess að greiða hæsta virðisaukaskatt í heimi. Nú borgar sig ekki að ráða fólk til að þrífa, klippa hár og baka pizzur nema gera það „undir borðið“ og í fjarveru stighækkandi skattheimtu á launatekjur og atvinnurekstur. Venjulegt fólk er orðið að glæpamönnum.
Tillaga hins svokallaða stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá hefur það sem meginþema að gera öll réttindi Íslendinga að skotspóni löggjafans. Hægt er að afnema öll þeirra með einfaldri löggjöf, ef stjórnlagaklúbburinn fær sínu framgengt. Engin réttindi til að fá að vera í friði fyrir ríkisvaldinu verða óhult, og þau munu því öll verða skert til muna ef uppkast að nýrri stjórnarskrá verður lögfest.
Ríkisstjórnin sem nú situr tók við slæmu búi og gerir það verra með hverjum deginum sem líður. Gegnsæi í stjórnsýslunni hefur minnkað verulega. Einkavæðing fer fram í lokuðum bakherbergjum opinberra bygginga, og skal engan undra ef þar eru leyfðar reykingar, enda eru sumir jafnari en aðrir á Íslandi.
Ef ríkisstjórnin situr út kjörtímabilið er óhætt að gera ráð fyrir að af þeim 600 dögum sem eftir eru af því verði flestir þeirra nýttir til að herða tak ríkisvaldsins á íslensku samfélagi. Ef sagan er einhver vegvísir um framtíðina má svo sennilega gera ráð fyrir að það taki 6000 daga að vinda ofan af þeim sósíalisma sem tók 600 daga að koma á. Því fyrr sem ríkisstjórnin sem nú situr víkur, því betra.
Geir Ágústsson
Þessi grein birtist áður í Morgunblaðinu 14. september 2011 og er aðgengileg áskrifendum að vefútgáfu blaðsins hér.
Niðursveifla í hagkerfi er gott tækifæri til að taka til í rekstri hins opinbera. Hinn ábyrgi stjórnmálamaður veit að hallarekstur á ríkissjóði er banvænn fyrir hagkerfið og skattgreiðendur. Hann sér tækifæri í minnkandi skattheimtu ríkisins - tækifæri til að taka til! Meira að segja stjórnmálamenn sem segja oft meira en þeir meina tala um að vinda ofan af ríkisrekstrinum. Það er gott.
Á Íslandi er fé skattgreiðenda í stórum stíl veitt í niðurgreiðslur og styrki til landbúnaðar. Á þessu hafa Íslendingar einfaldlega ekki efni. Það er því upplagt að nota tækifærið nú á krepputímum og skera þessar styrkjagreiðslur niður í núll.
Fordæmið er til staðar og finnst á Nýja-Sjálandi. Þar var, eins og er á Íslandi í dag, til kerfi umsvifamikilla styrkja og sértækrar aðstoðar til landúnaðarins. En svo kom kreppa, og menn gerðu sér grein fyrir að fjármögnun landbúnaðarstyrkja með opinberum lántökum var síður en svo af hinu góða.
Eða eins og segir á einum stað:
New Zealand was forced into the reform process by a clear sense of
impending economic catastrophe. Simply put, it had to eliminate
subsidies because it could no longer afford them.
Það skal tekið fram að það voru vinstrimenn sem afnámu styrkjagreiðslur til landbúnaðar á Nýja-Sjálandi, og þessu þorðu þeir því stuðningur við þá meðal bænda var hvort eð er lítill!
The reforms in New Zealand were undertaken by a left-wing government
that had a thin rural constituency at best. It did not expect to lose
political support, since there was only limited support extant for the
Government in the rural sector in any case.
Á ekki eitthvað svipað við um á Íslandi í dag?
Bændur gerðu sér líka grein fyrir að niðurgreiðslur til þeirra væru eitraður kokkteill því þegar stjórnmálamenn "niðurgreiða", þá vilja þeir líka stjórna. Og bændur sáu líka að það er engum til bóta að reka ríkið með halla til að styrkja eina atvinnugrein, eða eins og segir á einum stað:
[Farming leaders] reasoned that a key cause of inflation was
the budget deficits required to fund farm subsidies (among
other programs), so that more subsidies only made the problem
worse.
Lexían ætti að vera skýr: Íslendingar hafa ekki efni á því að niðurgreiða landbúnað. Þeir eiga því að hætta því. Nú er tækifærið fyrir stjórnmálamenn sem óttast um atkvæði sín og láta hugsjónir stjórnast af skoðanakönnunum, því það er sennilega meiri skilningur fyrir því nú en oft áður að ríkið þurfi að skreppa töluvert saman ef íslenska hagkerfið á að eiga sér viðreisnar von.
Þegar ríkisstjórn vinstriflokkanna tók við stjórnartaumum hét hún því að
starfa í anda „norrænna velferðarstjórna”. Þetta var snjallt orðalag.
Flestir Íslendingar tengja Norðurlöndin við öflugt velferðarkerfi og
sambland af háum sköttum og háum endurgreiðslum í formi allskyns bóta.
Það var því viðbúið að ríkisstjórnin hækkaði alla skatta og fyndi upp á
nýjum álögum til að fjármagna stækkandi velferðarkerfi.
Hin
íslenska vinstristjórn reyndist samt vera kaþólskari en páfinn þegar
kemur að norrænni velferð. Á meðan Norðurlöndin reyna að takast á við
halla í fjármálum hins opinbera og lækka skatta, sérstaklega á
launafólk, stefna Íslendingar í hina áttina. Nú er svo komið að
skattarnir á Íslandi eru svipaðir og þar sem þeir eru hæstir á
Norðurlöndunum, en á sama tíma hefur velferðarkerfinu verið fórnað á
kostnað allskyns gæluverkefna ríkisstjórnarflokkanna sem bæði auka
hallann á fjárlögum og eyðileggja verðmætasköpun í landinu. Hér má nefna
óþörf útgjöld eins og hið kolólöglega stjórnlagaráð, ESB-umsókn og
pólitísk réttarhöld. Og það er komið í veg fyrir atvinnuuppbyggingu með
stöðvun stórra framkvæmda í nafni umhverfisverndar, gjaldeyrishöftum til
að láta evruna líta betur út, þjóðnýtingu veiðiheimilda, og lengi má
telja.
Hið íslenska vinstri er miklu lengra til vinstri en gengur
og gerist á hinum Norðurlöndunum. Hinn norræni jafnaðarmaður vill að
breytingar eigi sér stað í smáum skömmtum á löngum tíma, til að trufla
ekki verðmætasköpun og starfsemi hagkerfisins. Hinn íslenski
jafnaðarmaður er tilbúinn að varpa fyrir róða öllu því sem virkar á
meðan hann er við völd því hann veit að íslenskir kjósendur munu aldrei
endurnýja umboð hans.
Íslendingar hafa nú vonandi lært sína lexíu
og greiða vonandi aldrei aftur fyrir aðgengi vinstriflokkanna að
ríkisstjórn. Flokkar jafnaðarmanna og sósíalista í Skandinavíu hafa
fyrir löngu hafnað þeirri ofurtrú á ríkið sem var við lýði fyrir um
þrjátíu til fjörutíu árum. Íslenskir „skoðanabræður” þeirra stefna í
þveröfuga átt. Þeir vilja skattpína almenning í drep, en láta hjá líða
að veita almenningi þjónustu í staðinn. Þetta þjóðskipulag er réttnefnt
velferðarríki andskotans.
Geir Ágústsson
Þessi grein birtist áður í Morgunblaðinu 13. júlí 2011 (tengill á grein fyrir áskrifendur að vefútgáfu Morgunblaðsins: HÉR).
Siv
Friðleifsdóttir og fleiri þingmenn hyggjast nú færa megnið af tóbakssölu landsins
niður í hinn ábatasama en ofbeldisfulla og miskunnarlausa svarta markað. Þetta
á að gerast með lögbanni á sölu tóbaks í venjulegum verslunum og söluturnum.
Þeir sem starfa á hinum svarta markaði nú hljóta að gleðjast yfir þessari vænu
búbót og vona að alþingismenn láti glepjast af tækifærismennsku og eltingarleik
við pólitískan rétttrúnað og afgreiði hið hræðilega lagafrumvarp með hraði, og
helst án umræðu.
Svarti
markaðurinn hefur tekið vel við sér síðan hrunið 2008 og síðan ákveðið var að
stefna með hraðbyri að sósíalísku þjóðskipulagi hér á landi. Gjaldeyrissala er
nú stunduð þar af miklum móð enda gjaldeyrishöftum fylgt eftir af meiri ofstopa
en elstu menn muna frá fyrri tíð slíkra hafta. Viðskipti með reiðufé eiga
sér nú stað í mun ríkari mæli en fyrir örfáum misserum og mun víðar, t.d. á
hárgreiðslustofum, smurstöðvum og verkstæðum. Í tilraun sinni til að hrifsa
stærri sneið af minnkandi köku standa yfirvöld nú frammi fyrir því að kakan er
orðin agnarsmá. Það var fyrirsjáanlegt þegar lagt var af stað með innleiðingu allsherjar
sósíalisma hér á landi, en nú er það veruleikinn sem blasir við.
Dekstur yfirvalda við hinn svarta markað er að mörgu
leyti skiljanlegt, í ljósi þess að fáir þingmenn kunna nokkur skil á
grunnatriðum hagfræðinnar. Almenningur þarf hins vegar að gera meiri kröfur til
sjálfs sín en hann gerir til þingmanna sinna, og setja spurningamerki við hinn
gengdarlausa yfirgang yfirvalda á frjálsum samskiptum og viðskiptum fólks og
fyrirtækja þess. Menn geta ekki búist við því að innleiðing sósíalisma hafi
aðrar afleiðingar en sósíalisma. Menn geta ekki búist við því að hinn íslenski
sósíalismi endi öðruvísi en sósíalismi annarra landa - með gjaldþroti alls og
allra.
Geir Ágústsson
Þessi grein birtist áður í Morgunblaðinu, 1. júní 2011
Ósköp er nú flest kjánalegt sem frá þessari borgarstjórn kemur. Þannig hefði verið mun áhrifaríkara að nefna Garðastræti Liu Xiaobo stræti og Víðimel Ai WeiWei mel, en við þessar götur eru fulltrúar Rauða-Kína með sendiskrifstofur sínar. Þannig hefðu sendiskrifstofur þessara hryllilegu stjórnvalda hér í borg borið á bréfsefni sínu nöfn kínverskra andófsmanna. Þannig gætu borgaryfirvöld lagt sitt lóð á vogarskálarnar svo þessir menn verði leystir úr haldi.
Eilífar deilur hafa verið um bílaumferð í miðbæ Reykjavíkur í mörg ár. Sumum finnst að Laugavegurinn, svo dæmi sé tekið, eigi að vera "göngugata", og að fjarvera bíla muni hafa margvíslega kosti í för með sér, t.d. fyrir þá sem þola ekki hljóðið í bílvélum. Aðrir mótmæla, og benda á að þegar umferð hefur verið takmörkuð á Laugaveginum hafi velta fyrirtækja í götunni fallið um allt að helming miðað við hliðstæða daga þar sem umferð hefur verið leyfð. Bann við bílaumferð muni því setja verslunarlíf í götunni á hausinn.
Það kann vel að vera að bílaumferð hafi í för með sér fleiri ókosti en kosti fyrir "lífið" á Laugaveginum. En hverjir vita það best? Eru það borgarfulltrúar sem "hafa samráð" við "hagsmunaaðila"? Eða eru það hagsmunaaðilarnir? Er stundum best að leyfa umferð og stundum ekki? Á að vera lokað fyrir bílaumferð á sumrin eða ekki, og þá alla daga eða bara á góðviðrisdögum? Á að loka öllum Laugaveginum eða bara hluta hans? Hver á að vega og meta það? Hver á að hafa lyklana að hliðinu að Laugaveginum og ákveða hvenær hliðið er opið fyrir bíla og hvenær ekki? Eiga hliðin að vera eitt eða fleiri?
Lausnin á þessari langvarandi deilu liggur auðvitað í augum uppi. Það hlýtur að vera best að koma Laugaveginum í hendur einkaaðila sem sjá strax á bókhaldi sínu hvort sé betra, að leyfa bílaumferð á Laugaveginum eða ekki, og sjá einnig hvenær og í hversu miklum mæli og hversu lengi á að leyfa slíka umferð.
Laugaveginn á að einkavæða. Það er hægt að gera með ýmsum hætti, t.d. með því að dreifa hlutabréfum í "Laugaveginum hf." til allra fasteignaeigenda við Laugaveginn, eða með því að setja Laugaveginn á uppboð og selja til hæstbjóðanda. Þá geta borgarfulltrúar hætt að rífast um bílaumferð á þeim vegi og kannski fækkað vinnustundum sínum sem því nemur (og lækkað í launum sem nemur fækkun vinnustunda).
Næsta skref er svo að einkavæða vegakerfið eins og það leggur sig og afnema alla skatta sem innheimtir eru í nafni "vegagerðar" og "viðhalds á vegum". Þá geta stjórnmálamenn einbeitt sér að einhverju öðru en því hvort bora eigi í gegnum þetta fjall eða hitt, eða hvort einhver tiltekinn vegspotti eigi að hafa eina akrein í sitthvora áttina eða tvær, eða tvær í eina átt ef því er að skipta.
Menn rífast sjaldan um það á Alþingi eða í ráðhúsi Reykjavíkur hvort fólk eigi að labba eða hlaupa. Hvers vegna að flækja líf stjórnmálamanna með því að láta þá rífast um það hvort fólk eigi að labba eða keyra?
Ríkisstjórnin sem nú situr gerir vont ástand verra með hverjum deginum
sem líður. Næsta ríkisstjórn fær hið mikla og erfiða verk að vinda ofan
af öllum þeim skaða sem núverandi ríkisstjórn hefur valdið á íslenskri
þjóð. Nauðsynlegt mun reynast að taka erfiðar ákvarðanir, en það forðast
núverandi stjórnvöld eins og heitan eldinn.
Fyrsta verkefnið er
tafarlaust afnám gjaldeyrishaftanna. Sú aðgerð verður flóknari eftir því
sem henni er frestað lengur. Afnám þeirra mun þurfa að eiga sér stað,
og slíkt afnám mun hafa áhrif á gengi krónunnar. Það eru rök fyrir
afnámi eins fljótt og auðið er, en ekki afsökun fyrir frekari frestun.
Núverandi ríkisstjórn skýlir sér á bak við höftin og þorir ekki að
sleppa krónunni lausri í nauðsynlega aðlögun að raunveruleikanum. Báðir
stjórnarflokkarnir hafa þar að auki pólitíska hagsmuni af því að
viðhalda höftunum. Næsta ríkisstjórn hefur vonandi dug til að takast á
við verkefnið og ljúka því hratt.
Næsta skref er aðskilnaður
ríkis og hagkerfis. Vinna við að leggja niður peningaframleiðslu
ríkisins þarf að hefjast sem fyrst. Sú hagfræði sem boðar ríkieinokun á
peningaútgáfu og verðlagsstýringu á verði peninga (vextir), og er meðal
annars kennd við hagfræðideild Háskóla Íslands, er hrunin fyrir löngu.
Frjáls peningaútgáfa olli engum verulegum vandræðum í mörg þúsund ár, og
raunar bjuggu menn við miklu stöðugri kaupmátt peninga sinna
en við þekkjum í dag. Ríkisútgáfan og ríkiseinokunin seinustu hundrað
árin hefur valdið gríðarlegum skaða og raunar miklu meiri efnahagslegum
skaða en ríkisafskipti af nokkru öðru sviði samfélagsins. Menn geta
aðlagast verðlagsstýringu á einstaka vöru, t.d. kindakjöti og innfluttum
osti, en eru öllu vanmáttugri til að bregðast við fikti við sjálfa
peningana, milliliðs viðskipta og grundvöll þróaðs samfélags manna.
Sjálf
útfærslan á endalokum ríkiseinokunar á peningaútgáfu og sjálfs
ríkisgjaldmiðilsins mun valda tímabundnum erfiðleikum fyrir þá sem
treysta á kaupmátt hans. Það ætti að vera góður hvati fyrir
stjórnmálamenn að drífa af einkavæðingu peningaútgáfunnar. Því lengur
sem henni er frestað, því meiri vandræði á hagkerfið og samfélagið í
heild sinni í vændum.
Önnur og mikilvæg verkefni liggja einnig
fyrir við næstu ríkisstjórnarskipti. Vinda þarf ofan af skattahækkunum
og hefja mikla lækkun skatta, mikið og þungt regluverk á
atvinnustarfsemi þarf að minnka og einfalda og aðlögun að
Evrópusambandinu þarf að stöðva, svo fátt eitt sé nefnt. Ríkisreksturinn
þarf að draga saman, bæði með skattalækkunum og umtalsverðri
einkavæðingu. Allan ríkisrekstur dagsins í dag þarf að endurskoða með
það að markmiði að koma honum út á markaðinn, fjarri afskiptum
stjórnmálamanna, og fjarri skjóli ríkisábyrgðar á áhættusækni með
annarra manna fé.
Skattheimta ríkisins þarf að minnka verulega
svo svigrúm einkaaðila og einstaklinga til að byggja upp hagkerfið geti
aukist. Útgjöld hins opinbera þarf að færa niður fyrir skatttekjur svo
skuldasöfnun hins opinbera stöðvist og hröð niðurgreiðsla skulda geti
hafist.
Næsta ríkisstjórn hefur vonandi dug og þor til að takast á
við hin miklu og erfiðu verkefni sem hennar bíða. Ef hún slær
einhverjum þeirra á frest munu vandræði Íslands halda áfram að aukast.
Ef hún reynir t.d. að fjármagna ríkið með áframhaldandi lántökum mun það
bitna á næstu kynslóðum. Ef hún reynir að halda í einokun ríkisins á
peningaútgáfu mun stöðug og langvarandi verðbólga halda áfram að hrella
íslensk heimili og fyrirtæki. Ef hún reynir að framlengja
gjaldeyrishöftin verður svarti markaðurinn bráðum eina athvarf þeirra
sem vilja skiptast á verðmætum, vinnu og þjónustu.
Verkefnalisti
næstu ríkisstjórnar liggur nokkurn veginn fyrir, bæði til lengri og
skemmri tíma. Núna hefst biðin eftir því að verkstjóri gefi sig fram.
Geir Ágústsson
Þessi grein birtist áður í Morgunblaðinu 12. maí 2011.
Núverandi sósíalistastjórn stefnir beinlínis að því að skerða kjör almennings til að herða tök sín á öllu þjóðlífi - gera fólk háð kerfinu. Það gott að talsmenn atvinnulífsins eru farnir að tala tæpitungulaust og vonandi hættir að stynda þjónkun við valdhafana.
Níu af tíu ráðherrum í núverandi ríkisstjórn voru félagar í Alþýðubandalaginu, en síðasta verk þess flokks var að fara í opinbera heimsókn til Kúbu í boði systurflokksins - kúbanska kommúnistaflokksins. Það mætti jafnvel gera því skóna að þeim finnist það bara hið besta mál að Ísland færist nær Austur-Evrópu.
Þessa dagana gengur illa að semja um kjör á almennum vinnumarkaði. Ljóst er að við ríkjandi stöðnun í atvinnulífinu (stöðnum sem ríkisstjórnin ber alla ábyrgð á) er fjarstæðukennt að launafólk geti gert sér vonir um raunverulegar kjarabætur. Hækkun kaupgjalds mun þannig óhjákvæmilega leiða til hækkun verðlags og ábatinn verður enginn.
Ef verkalýðshreyfingin hefur einhverja minnstu löngun til að bæta kjör almennra launþega ætti hún að stefna félagsmönnum sínum niður á Austurvöll og heimta nýjar kosningar. Hér verða engar framfarir með núverandi stjórn, sem stefnir að því að lama allt atvinnulíf.
En líkast til verða formaður ASÍ og hans kumpánar áfram sem spakir seppar Jóhönnu og Steingríms.
Okkur er tamt að hugsa um verkalýðsfélög sem sjálfsagðan hlut á vinnumarkaðinum. Verkalýðsfélög spara ekki stóru orðin þegar þau segja frá eigin ágæti.
Dæmi:
Segja má að verkalýðshreyfingin hafi að verulegu leyti byggt upp það
velferðarkerfi sem við njótum góðs af í dag, samstaðan og fjöldinn gerir
henni kleift að hafa pólitísk áhrif og móta þjóðfélagið að þörfum
fólksins.
Annað dæmi:
Enginn vafi leikur á mikilvægi verkalýðshreyfingarinnar fyrir launafólk
og þjóðfélagið í heild. ... Barátta BSRB og annarra samtaka launafólks á undangengnum áratugum
hefur borið ríkulegan ávöxt: skilað auknum réttindum, betri kjörum og
meiri velferð almenningi til handa. Afar fáar úrbætur hafa komið upp í
hendurnar á launafólki fyrirhafnarlaust – þvert á móti hafa allir
meiriháttar áfangar og sigrar náðst í krafti samtakamáttar og samvinnu
fjöldans.
Fullyrðingar af þessu tagi finnast víða, jafnvel í því námsefni sem ríkisvaldið skipar skólunum að kenna börnum og unglingum.
Sannleikurinn um gagn og nytsemi verkalýðsfélaga er samt annar (og flóknari). Verkalýðsfélög eru ekki félög eins og hver önnur. Í krafti ríkisins hafa þessi félög fengið mikið vald og leyfi til að beita ofbeldi af ýmsu tagi, t.d. stöðva starfsemi fyrirtækja án þess að þau hafi möguleika á að sækja vinnuafl utan verkalýðsfélaganna. "Samtakamáttur" verkalýðsfélaganna hefur ekki leitt til kjarabóta og ekki aukið velferð almennings. Þvert á móti.
Verkalýðsfélög eru hagfræðilegur óþarfi og eru þeim mun skaðlegri hagkerfinu eftir því sem aðild að þeim er útbreiddari.
Verkalýðsfélög
stuðla að atvinnuleysi
valda mismunun
flytja verðmæti til á óhagkvæman hátt
ýta undir deilur
verðlauna þá sem skapa minni verðmæti á kostnað þeirra sem skapa meiri verðmæti
... og fleira má týna til.
Um hagfræðina á bak við skaðsemi verkalýðsfélaga má lesa meira hér.
Hér er dæmisaga sem segir frá því hvernig verkalýðsfélag drap eitt stærsta og ríkasta fyrirtæki heims.
Verkalýðsfélög eru ekki góð né nauðsynleg, hvorki fyrir atvinnurekendur né launþega. Goðsögnin sem umleikur þau hefur blekkt marga. Við eigum það til að líta á verkalýðsfélög sem einhvers konar sjálfsagðan hluta af samfélaginu. Staðreyndin er samt sú að því fleiri sem eru í verkalýðsfélögum, og eftir því sem verkalýðsfélög hafa meiri völd til að knésetja fyrirtæki, því verri eru verkalýðsfélög fyrir okkur öll.
Í apríl 2010 féll ríkisstjórn Belgíu. Stjórnarkreppa var sögð vofa yfir landinu. Úr frétt mbl.is um málið:
Sagði
[Albert II konungur] að stjórnarkreppa ógni stöðu Belga í
Evrópusambandinu en Belgía á að [taka] við forsæti ESB eftir tvo
mánuði.
Skemmst er frá því að segja að engin ríkisstjórn hefur enn verið mynduð í landinu. Breska blaðið Telegraph fjallar um ástandið í landinu:
For the past 12 months, therefore, Belgium has been without a
government. The  impasse means it recently set a world record for the
longest period without an official administration, surpassing the 353
days of Cambodia in 2003/4. (telegraph.co.uk)
En er Belgía þá orðin að stórri ringulreið þar sem ruslið safnast upp og ekkert fjármagn fæst til fyrirtækja? Öðru nær. Frétt Telegraph heldur áfram (feitletrun bætt við hér):
A country in such political limbo is often said to be "in crisis". Yet
Belgium managed the whole of its six-month presidency of the European
Union last year with a caretaker government. It has set out a budget
and even dispatched fighter jets to help police the no-fly zone over
Libya. Local government carries on; the refuse is collected and public
transport works. The financial markets, far from taking fright at this
rudderless ship, continue to lend to Belgium at more favourable rates
than most of the rest of the EU. Taxes have not gone up because no
agreement can be made on debt restructuring. As a result, business and
consumer confidence is high.
Frétt Telegraph lýkur svo á eftirfarandi orðum:
Belgium has found a sure-fire way to restrain public expenditure: by
stopping the politicians getting their hands on the money in the first
place.
Getur verið að reynsla Belga af "stjórnarkreppu" sinni sé sú að betri er engin ríkisstjórn en ríkisstjórn sem skattleggur, skuldsetur og keyrir þjóðarskútuna á bólakaf? Svo virðist vera.
Kannski vantar Íslendinga bara eina "belgíska stjórnarkreppu" til að koma sér út úr hruninu. Ástandið getur a.m.k. ekki versnað með "stjórnarkreppu" frá því sem nú er, með ríkisstjórn sem með mjög einbeittum hætti er að kafsigla hinni íslensku þjóðarskútu á leið sinni til heljar og Brussel (í "stjórnlausri" Belgíu!).
Vík, vanhæfa ríkisstjórn, og komi í staðinn: Ekkert!
Ef einhver var í vafa um að það sé stríð í gangi, þá skal sá hinn sami láta af efasemdum nú þegar og velja sér „lið“. Það er stríð í gangi. Stríðið er við sósíalisma og það er háð á mörgum vígstöðvum.
Gjaldmiðlastríð ríkisins við frjálsa verslun er í fullum gangi. Í Bandaríkjunum vinna menn að því hörðum höndum að drepa bandaríska dollarann. Hann stefnir óðfluga í spíral rýrnandi kaupmáttar og sífellt hraðari peningaprentunar til að fjármagna gríðarlegan hallarekstur bandaríska alríkisins. Heimurinn hefur notast við bandaríska dollarann sem „forðamynt“ (e. reserve currency) í um 100 ár og fall dollarans mun því hafa víðtækar afleiðingar fyrir nánast alla aðra gjaldmiðla. Þegar peningar fólksins stefna í verðleysi, þá hrindir það af stað miklum óróa. Almenningur horfir upp á kaupmátt peninga sinna gufa upp og fyllist örvæntingu og ótta. Í Þýskalandi varð hrun gjaldmiðilsins til þess að greiða aðgengi þjóðernissósíalista að valdataumunum. Sporin hræða.
Gjaldmiðlahöftin á Íslandi eru angi af gjaldmiðlastríði hins opinbera við almenning. Þau koma í veg fyrir eðlileg viðskipti við útlönd og venjulegt fólk sem vill verja kaupmátt sparnaðar síns er neytt til að beita ólöglegum aðferðum til að koma fé sínu í skjól fyrir verðbólgunni.
Ríkisreksturinn á Vesturlöndum hefur náð ósjálfbærri stærð, og það fyrir löngu. Hann krefst sífellt meiri skattheimtu til að standa undir sér. Lífeyriskerfi, heilbrigðiskerfi og velferðarkerfi standa ekki undir sér lengur. Þau eru nú fjármögnuð með hárri skattlagningu á alla verðmætaskapandi vinnu. Þegar hendurnar sem skapa verðmætin verða orðnar færri en þær sem taka við verðmætunum verður ekki aftur snúið. Fólk á efri árum verður sett út í kuldann. Yngra fólk missir hvatann til að leggja á sig vinnu og safna til efri áranna. Atvinnulaust fólk sér enga ástæðu til að koma sér í vinnu þar sem stærsti hluti launa þeirra er hirtur til að moka ofan í botnlausa hít hins ósjálfbæra ríkisreksturs.
Sjálft réttarríkið er nú úthrópað. Dómarar sem segjast einungis dæma „eftir lögum“ eru sakaðir um annarlega hagsmuni. Þeir eru beðnir um að dæma eftir „tilfinningunni í samfélaginu“ og öðrum óljósum mælikvörðum. Þegar dómarar eru hvattir til að dæma að eigin geðþótta og fylgja duttlungum almenningsálitsins er lögum og rétti alvarlega ógnað. Þegar fyrirfram vitneskja um hvað má og hvað má ekki er orðin óljós er hætt við að virðingin fyrir lagabókstafnum minnki og ólögleg starfsemi færist í aukana. Þeir sem hæst gala fá sínu framgengt. Þeir sem taka frumkvæði sem síðar meir fellur í ónáð „samfélagsins“ eru dæmdir sem glæpamenn og óþokkar.
Sagan kennir okkur að um leið og yfirvöld eru hætt að fylgja ströngum reglum réttarríkisins þá eru venjulegir borgarar varnarlausir gagnvart óréttlæti og misnotkun hins opinbera á gríðarlegu valdi sínu yfir lífi okkar og eigum.
Náin tengsl viðskiptalífsins við stjórnmálin eru hættumerki. Rétt tengdir aðilar í viðskiptalífinu fá frjálsar hendur til að græða á tá og fingri með því að taka mikla áhættu með fé annarra. Hagnaðinum fá þeir að stinga í vasann, en ef þeir tapa þá er skattgreiðendum hrint í skuldafenið og gert að greiða af lánunum. Bankastarfsmenn heyra það frá stjórnmálamönnum að sama hvað á gengur, þá munu þeir ekki þurfa lýsa sig gjaldþrota ef þeir fleygja sparifé almennings á bálið.
Þessi nánu tengsl koma einkum fram í starfsemi seðlabanka og ríkiseinokunar á peningaprentun. Án seðlabanka og „lánveitanda til þrautavara“ stæðu viðskiptabankarnir einir og varnarlausir frammi fyrir viðskiptavinum sínum ef þeir víkja af leið aðhalds og traustvekjandi viðskiptahátta. Í dag ver ríkisvaldið, í skjóli seðlabanka, bankana fyrir öllum mistökum þeirra. Þeir fjölfalda peningana okkar og stinga miklum hagnaði í vasann. Almenningur trúir því að sparifé sitt sé öruggt, en það er það ekki. Það er gírað margfalt upp og sent út í formi vaxtaberandi lána til eigenda bankanna og viðskiptafélaga þeirra, lána sem verða aldrei greidd til baka nema að mjög litlu leyti.
Eftirlit með lífi okkar eykst í sífellu. Ríkisvaldið tryggir sér aðgengi að öllum kortafærslum okkar með einföldum og auðsóttum úrskurði og eykur heimildir lögreglu til að rannsaka málefni einstaklinga án heimilda og rökstudds gruns um glæpsamlegt athæfi. Almenningi er talin trú um að þetta sé allt í okkar þágu og til að auka öryggi hins almenna borgara, en sagan segir okkur að í raun er um að ræða hert tök hins opinbera á okkur með það að markmiði að fækka undankomuleiðum okkar ef okkur finnst ríkið seilast of djúpt í vasa okkar eða hirða af okkur of mikið af sjálfræði okkar og frelsi.
Listinn yfir vígstöðvar ríkis og okkar er vitaskuld mun lengri. Hér verður samt staðnæmst í þeirri von um að lesandinn hafi áttað sig á stöðu mála.
Stríðið við sósíalismann er í fullum gangi. Ertu búin(n) að velja þér lið?
Geir Ágústsson
Frjálshyggjumenn hafa alltaf haldið merki réttarríkisins hátt á lofti. Í þeirra augum er réttarríkið ein helsta vörn frjálsra einstaklinga gegn handahófskenndum tilskipunum hins opinbera. Eða eins og Hayek skrifaði árið 1953:
Since this Rule of Law is a rule for the legislator, a rule about what
the law ought to be, it can, of course, never be a rule of the positive
law of any land. The legislator can never effectively limit his own
powers. The rule is rather a meta-legal principle which can operate only
through its action on public opinion. So long as it is generally
believed in, it will keep legislation within the bounds of the Rule of
Law. Once it ceases to be accepted or understood by public opinion, soon
the law itself will be in conflict with the Rule of Law.
Á öðrum stað segir:
Það er gríðarlega alvarlegt mál þegar dómstólar láta undan pressu
almenningsálitsins og dæma eftir kröfu dómstóls götunnar í stað þess að
dæma eftir lögum og dómavenju. Réttarríkið byggir m.a. á því að hægt sé
að treysta því að dómstólar séu sjálfstæðir og íhaldssamir.
Og á enn öðrum stað segir:
Í því andrúmslofti sem hér hefur ríkt um nokkurt skeið er mikill
þrýstingur á dómara að dæma eftir því hvernig vindar blása í
þjóðmálaumræðunni. Er þá gjarnan vísað til einhvers óskilgreinds
réttlætis og sanngirnis. Það er hins vegar afar mikilvægt að dómstólar
bregðist ekki skyldum sínum við að gæta lögbundinna réttinda almennings
og samfélagsins þrátt fyrir vaxandi þrýsting pólitískra afla, fjölmiðla
og hagsmunahópa um annað.
Ekki eru allir sammála um gildi réttarríkisins í frjálsu samfélagi, og sérstaklega ekki eftir hrunið haustið 2008. Háværar kröfur eru um að dómstólar láti lagabókstafinn aðeins frá sér og byrji að dæma eftir einhverju öðru, t.d. því hvernig vindar blása. Þingmenn hafa jafnvel tekið undir slík sjónarmið í ræðustól á Alþingi.
Minnkandi virðing fyrir réttarríkinu kemur einnig fram þegar menn tala um "áhættuna" af því að fara með deilumál fyrir dómara. Icesave-deilan, sem nú tröllríður allri umræðu á Íslandi, er gott dæmi um það. Þar deila menn um "áhættuna" af því að fara með deilumál fyrir dómstóla og fá úrskurð sem byggist á lögum og reglum. Svona málflutningur er dæmi um minnkandi virðingu fyrir réttarríkinu.
Þetta er varhugaverð þróun. Grundvöllur réttarríkisins felst í því að einstaklingar þekki þær leikreglur sem gilda í samfélaginu (bæði í samfélagi einstaklinga og samfélagi ríkja) og geti verið vissir um að á meðan þær leikreglur eru ekki brotnar þá sé ekki hægt að varpa viðkomandi í grjótið. Ef réttarríkið er að hörfa þá er vald ríkisins til að setja reglur á eftir á eða dómara til að dæma eftir handahófskenndum skoðunum að aukast.
Gegn þeirri þróun þarf að sporna.