Spuni Egils Helgasonar og fleiri

Blaðafulltrúar ríkisstjórnarinnar skjótast nú fram úr öllum skúmaskotum með listilega spunninn þráð sinn:

http://silfuregils.eyjan.is/2010/12/09/icesave-og-svikamylla-landsbankans/#comments

Jóhanna Sigurðardóttir hefði ekki getað afsakað sig og ríkisstjórnina betur en Egill Helgason gerir, þegar hann segir:

“Icesave samningur er kynntur. Hann er mun hagstæðari en hinir fyrri – og kannski eðlilegt að spurt sé hvernig stóð á því að samþykktir voru samningar sem voru svo miklu verri og hvers vegna var talið svo bráðnauðsynlegt að þeir næðu í gegn? Í besta falli virðist þetta bera vott um rangt stöðumat – sem er kannski skiljanlegt  í því fári sem ríkti eftir hrunið.”

Æ, aumingja Steingrímur og Jóhanna, þau voru bara svo ringluð! Eða voru þau kannski bara fórnarlömb aðstæðna? Hvernig í ósköpunum getur það liðist að þáttastjórnendum ríkisútvarpsins haldist uppi að viðhafa svo hlutdrægan málflutning?

Síðan munu menn reyna að draga athyglina frá Svavarssamningunum og vanhæfri ríkisstjórn og reyna að koma höggi á stjórnendur og stærstu hluthafa Landsbankans í staðinn.

En málið er ekki flókið. Íslenska ríkið á ekki og má ekki taka á sig skuldbindingar einkabanka.


mbl.is Mikil áhætta ríkissjóðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þegar Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands setti hryðjuverkalögin, samin fyrir óvini Hins Frjálsa Heims, á þá eitt hæststandandi land í heiminum, siðferðilega sem á öðrum sviðum, Ísland, með lengstu alþingishefð í veröldinni..............herlaust land sem var á toppnum á Global Peace Index sem friðsælasta og mest friðelskandi land heims......

þá sveik hann Vestræna menningu eins og hún lagði sig. Lagði lóð á vogarskálar þeirra sem vilja tortýma henni með að gera lítið úr hryðjuverkalögunum, og lagði eyðingaröflunum lið með að bera þau saman við 30 misvitra íslenska bankamenn.

Að láta þjóðina alla gjalda siðferðis örfárra óvinsælla bankamanna er sama "lógík" og var að baki Helförinni, sem nazistar, óvinir Vestrænnar menningar eins og Gordon Brown og terroristarnir vinir hans sem þakka honum fyrir að vera komnir á blað með Íslandi og þar með hvítþvegnir, töldu sanngjarna lausn við hinu svokallaða "gyðingavandamáli", nú er víst byrjað að tala um "Íslendingavandamálið" með sömu rökum...en viljum við virkilega láta kúga okkur af ný-fasistum og neo-colonialistum???!!!!!!

Ef Íslendingar taka á sig þessar skuldir munu þeir hljóta slæmt karma fyrir, afþví skuldaþrældómur er helsta ástæða sárrar fátæktar fátækustu ríkja heims, en ekki skortur á matvælum eða annað. Þeir sem ekki þekkja til ættu að kynna sér "Make Poverty History" átakið sem Bono í U2 var front maður fyrir. Við skuldum þessum þjóðum að við látum ekki þjóðirnar sem hnepptu þau í þennan þrældóm og hafa með því svellt milljónir og milljarða barna í hel......hneppa okkur í þrældóm líka. Ef við sleppum við að borga, opnar það smugu fyrir þau að hætta að borga. Svo mikilvægt er okkar hlutverk, og ófyrirgefanlegt að bregðast því núna, og erum við þá persónulega ábyrg fyrir sveltandi Afríkubúum og höfum með því að taka á okkur óréttlátar skuldir lagt persónulega blessun íslensku þjóðarinnar yfir meðferðina á okkar minnstu bræðrum meðal þjóða heims.

Að lokum skal hafa í huga að Þroskastríðið er ekki á enda. Bretar hafa arðrænt þjóðir heims hvað mest allra þjóða og heiminum blæðir enn undan heimsvaldastefnu þeirra. Þeir hafa lengi ásælst auðlindir okkar.

Frelsi - Jafnrétti - Bræðralag!

Á lykiltímum í veraldarsögunni þýðir ekki að hugsa smátt...Ísland verður að rísa undir hlutverki sínu.....

Lykillinn (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 13:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband