Almenningur sniðgengur skrípaleikinn

Það er ekki nema vonlegt að kosningaþátttakan sé svo dræm sem raun ber vitni, enda svokallað "stjórnlagaþing" skrípaleikur stjórnvalda, sem vilja draga athyglina frá því hversu ömurlega þeim hefur tekist til við landsstjórnina.

Um leið telja þau Steingrímur og Jóhanna fólki trú um að verið sé að færa valdið til fólksins, en þess vandlega gætt að það ráði engu í raun. Í Rómaveldi til forna var þetta kallað brauð og leikar. Almenningur sér í gegnum sýndarmennskuna og sniðgengur skrípaleikinn.


mbl.is 21% höfðu kosið kl. 17
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Finnst þetta stjórnlagaþing lykta af samsæri. Það er engin sérstök ástæða til að breyta stjórnarskránni. Það var ekki hún sem olli hruninu. Það sem vantaði var að farið væri eftir gömlu stjórnarskránni, sem hefur verið margbrotið á. Held þetta sé plott alþingis til að losna við forsetan og kirkjuna, og þar með að einhver geti böggast í þeim út af Icesave, ESB, og fleiru sem þjóðin gæti vísað til forseta, og um leið að afnema hér smám saman kristinn sið til að auðvelda fyrir að innlima Ísland í Islamska ríkið Europa-stan sem mun væntanlega brjóta á rétti innfæddra sem verða kannski brátt í minnihluta:( Ég hefði nú samt kosið, hefðu veikindi ekki komið í veg fyrir það, en það voru fáir að kjósa, mest besserwisserar og málpípur Samfylkingarinnar.

Resist (IP-tala skráð) 27.11.2010 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband