26.6.2009 | 15:15
Andsnúnir lýðræði
Hér sýna sósíalistarnir sitt rétta eðli. Steingrímur telur sig ekki einu sinni þurfa að rökstyðja samningana við Breta og Hollendinga. Hann var alla tíð á móti því að þeir yrðu birtir opinberlega. Nú þegar lýðum er ljóst hvers konar nauðungarsamningar eru hér á ferð grípur Steingrímur til þess ráðs að hafa í hótunum. Þetta er ógeðfelldur málflutningur.
Strandi Icesave, strandar allt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Eins og ég segi hér þá eru þetta tvö mál - annars vegar hvort við samþykkjum skuldbindinguna um að borga Icesave og hins vegar hvort við samþykkjum þessa tilteknu útfærslu....og 5.5% vextina. Menn geta verið ósammála útfærslunni með ýmsum rökum, en miðað við það sem á undan er gengið sé ég ekki hvernig eigi að hafna skuldbindingunni.
Púkinn, 26.6.2009 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.