30.9.2009 | 14:17
Jóhanna grefur sér gröf
Það ætti að verða samfylkingarmönnum áhyggjuefni að hafa gert Jóhönnu Sigurðardóttur að formanni sínum, konunnar sem gat ekki starfað í flokki á sínum tíma og stofnaði sérstaka hreyfingu utan um sjálfa sig, hreyfingu sem að einstakri hógværð var kennd við þjóðina. Líklega eru fáir íslenskir stjórnmálamenn á seinni árum jafnstjórnlyndir og Jóhanna og til þess arna beitir hún klækjastjórnmálum og afar hörðum yfirlýsingum. Sú hin seinasta var dropinn sem fyllti mælinn og Ögmundi fannst sér hótað.
Saga íslenskra vinstrimanna heldur áfram. Saga sundrungar og haturs.
Ögmundur segir af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Jóhanna er án alls vafa versti forsætisráðherra í samanlagðri sögu hins fullvalda ríkis.
Sigga (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 23:42
Já og ef hún fær sínu fram að ganga þá verður ekkert fullveldi svo hún getur trónað á toppnum yfir verstu forsætisráðherra þjóðarinnar.
Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 3.10.2009 kl. 23:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.