10.7.2009 | 01:03
Bjarni stendur sig vel
Það er ánægjulegt til að þess að vita að hér á landi séu enn til stjórnmálamenn sem standa í ístaðið. Menn með bein í nefinu, sem láta ekki bjóða sér þau forkastanlegu vinnubrögð sem vinstristjórnin viðhefur. Einkunnarorð hinnar nýju stjórnar virðast vera pukur og leynd. Vinstrimenn hafa aldrei haft áhuga á opnu og gagnsæu stjórnkerfi.
Fór fram á afsökunarbeiðni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Dapurlegt hvað kreppukallinn og Sigurbjörg viðhafa fátæklegan málflutning. ÆÆÆ og hahaha eru "rök" hinna rökþrota.
frjálshyggjumaður (IP-tala skráð) 10.7.2009 kl. 01:33
Við þurfum fleiri menn eins og Bjarna! Íslendingar þurfa sterka og góða leiðtoga um þessar mundir.
Sigga (IP-tala skráð) 10.7.2009 kl. 01:44
Já Dúddi Bei, börnin kaetast af smáu stendur einhvers staðar.
Annars hef ég ekkert út á unga Bjarna að setja, ábyggilega góður og heill drengur, sem hefur tekist á hendur þá mestu áskorun, sem haegt er að hugsa sér. Þetta, kannski ótímabaera próf sem Bjarni þreytir nú á eftir að skila sér síðar meir í hans reynslubrunni. Vona bara að hann standist álagið og verði sjálfum sér trúr, heill og sannur.
Fyrsta skref fyrir Bjarna; biðja þjóðina afsökunar á syndum forvera sinna. Þjóðin býður enn þá eftir henni, þó þið séuð sátt.
Biðst velvirðingar á baekluðu aei í tölvunni hér vestan hafs, einhverjir andsk. afturhaldskommatittar bera ábyrgð á þessu helsi í tölvunni minni.
Bið svo kaerlega að heilsa Hannesi, sakna hans úr umraeðunni, hann er kannski á ferðalagi um landið?
Jenný Stefanía Jensdóttir, 10.7.2009 kl. 03:35
Afsakaðu ónæðið aftur Dúddi minn, (yess ææææið komið í lag) en það átti auðvitað að fylgja linkurinn um landið?
http://landid.blog.is/blog/landid/
Jenný Stefanía Jensdóttir, 10.7.2009 kl. 03:44
Kreppukallinn Arnar Helgi Aðalsteinsson er eitthvað önugur, hvað ætli sé að hrella kallinn?
Gummi (IP-tala skráð) 10.7.2009 kl. 10:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.