27.7.2010 | 16:11
Útlendingahatur og hatur á fjárfestum
Íslenskir vinstrimenn allra flokka hafa löngum haft megnan ímugust á útlendingum og sýnu verri eru þó fjárfestar. Útlendir fjárfestar hljóta þannig að vera sérlega hættuleg manngerð.
Um þessar mundir munu reykvíkingar þurfa að taka á sig auknar byrðar vegna glæfralegra lántaka Orkuveitunnar undanfarin ár. En skattgreiðendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af skuldum þeirra einkaaðila sem eiga orkufyrirtæki.
Hvernig væri að hugsa dæmið upp á nýtt og hætta þessum heimóttarskap með söngkonuna á Manhattan í broddi fylkingar? Hvað er íslenskum neytendum til hagsbóta? Við hljótum flest að geta sammælst um ágæti þess að samkeppni ríki á þessum markaði og fleiri aðilar komi inn á hann. Látum heldur ekki óvild í garð útlendinga villa okkur sýn.
Farvegurinn er fundinn. | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ef amma þín er skuldug....seldu hana..
Ef þú átt gæs sem verpir gulleggjum...leigðu hana.
Óvild í garð útlendinga minn rass..Eru frjálshyggjuplebbarnir ennþá lokaðir inn í sínum eigin afkima þara sem sólin aldrei skín ?
hilmar jónsson, 27.7.2010 kl. 18:09
Innlegg Hilmars er frábær viðbót við blogg frjálshyggjufélagsins, það er nefnilega ekki bara útlendingahatur sem ræður för í þessu máli heldur einnig heimska og einfeldni.
Blahh (IP-tala skráð) 28.7.2010 kl. 08:26
"En skattgreiðendur þurfa ekki að hafa áhyggjur af skuldum þeirra einkaaðila sem eiga orkufyrirtæki"
Vil bara minna frjálshyggjufélagið á að Íslenska þjóðin situr uppi með 300 miljarða aecesave skuld sem einkafyritaeki kom okkur í, þar var gróðin einkavaeddur, en skuldirnar þjóðnýttar.
Helgi Rúnar Jónsson (IP-tala skráð) 28.7.2010 kl. 08:46
Þetta er alveg rétt hjá Helga Rúnari, enda hefði ríkið aldrei átt að taka yfir þessar skuldir. Hins vegar kemur það ekkert á óvart að ríkið hafi gert það enda eru ríki almennt frekar ömurleg fyrirbæri sem gera borgurum sínum ekkert gagn.
Amm (IP-tala skráð) 28.7.2010 kl. 08:51
Og kannski eilítil hártogun svona að lokum, Helgi sagði að íslenska þjóðin skuldaði 300 ma. en vitanlega geta þjóðir hvorki átt neitt né skuldað neitt. Þjóðríki geta það aftur á móti.
Amm (IP-tala skráð) 28.7.2010 kl. 08:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.