Óskandi

Það væri óskandi ef vinstristjórnin hefði sig á brott. Aðgerðir hennar hafa fram til þessa ekki gert annað en vega að heimilunum og fyrirtækjunum í landinu. Nýir skattar bætast við svo að segja á hverjum degi, en stjórnin má ekki heyra á það minnst að skera niður ríkisútgjöld. Það væri óskandi að við stýrið settust menn sem hefðu betri skilning á högum fólks og fyrirtækja í landinu, en væru ekki fastir í fílabeinsturni vinstri-elítunnar.
mbl.is Icesave gæti fellt stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Loksins er þá einhver annar en ég sem trúir því að Harry Potter er til í alvöru. Þá reddast þetta. En hvar er gaurinn ? Í Valhöll kanski ?

Finnur Bárðarson, 22.6.2009 kl. 17:47

2 identicon

Málefna-Finnur, holdgervingur röksemdafærslu vinstrimanna. Augljóslega "reddast" hlutirnir ekki ef Harry Potter er settur við völd.

Sammála mörgu í þessari færslu Frjálshyggjufélagsins. Þeir virðast vera þeir einu sem þora að gagnrýna þessa gengdarlausu eyðslu sem fram fer hjá hinu opinbera.

Ég fagna því að á þessum tímum séu til menn sem þora að sýna klærnar þegar skattahækkanir eru lagðar á borð. Af hverju eru engir frjálshyggjumenn á Alþingi til að stöðva þetta? Skora á ykkur að bjóða fram í næstu kosningum.

Atli Þór (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband