Leiksýning fáránleikans

"Auðvitað stefnum við að því að ljúka þessu kjörtímabili" segir Jóhanna og gagnrýnir stjórnarandstöðuna fyrir skort á hugmyndum um viðreisn atvinnulífsins.

Leiksýning fáránleikans heldur áfram þar sem verkaleikafirring einkennir alla persónusköpun. Sjálfstæðismenn höfðu lagt fram ýtarlegar og raunhæfar tillögur um endurreisn atvinnuveganna, meðal annars með lægri sköttum. Hins vegar er hugmyndaleysi Jóhönnu og Alþýðubandalagsmannanna níu algert.

Öll orka stjórnarinnar fer í innbyrðis deilur eða tilraunir til lausnar á innbyrðis deilum. Laskað fley stjórnarinnar stendur í björtu báli og silfurhærður skipstjórinn í stafni lætur eins og ekkert hafi í skorist. Jóhanna sagði árið 1994 að hennar tími myndi koma. Hennar tími er þá alla vega liðinn, enda er hún án efa lakasti forsætisráðherra sögunnar. Það blasir við mönnum nú að orð hennar árið 1994 virðast hafa verið hrein og klár hótun.


mbl.is Jóhanna: sit út kjörtímabilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í tíð "vinstristjórnarinnar" hefur fátækt aukist til muna og kjör lítilmagnans hríð versnað, auk þess sem þessari stétt lítilmagnanum hefur fjölgað sem aldrei fyrr. Lítil börn róta nú í ruslinu í leit að mat og gamalmenni eru borin út á götu, og við erum orðin eina ríkið í okkar heimshluta sem neitar sumum ungmennum um skólagöngu, þó þau hafi náð öllum samræmduprófum, út af niðurskurði í menntakerfinu. Á sama tíma er hvergi skorið niður í yfirbyggingunni og milljörðunum sem hefði verið hægt að eyða í að laga mennta- og húsnæðismál og hjálpa bágstöddum öllum kastað á bálið í Brussel. Þetta hyski er ekki vinstrimenn. Ég er vinstrimaður. Vinstrimenn eru lýðræðislega hugsandi fólk sem sólundar ekki fé þjóðarinnar í einkahobbý sín, esb þruglið, meðan börnin róta í ruslatunnunum, heldur virðir jafnrétti manna og vilja fólksins og reynir að tryggja jöfn lífskjör allra. Þessi ríkisstjórn er aftur á móti tilbúin að brjóta lög og reglur í auðvaldsdýrkun sinni, í því skyni að sleikja sig upp við auðvaldið á kostnað almennings. Hæstaréttardómar eru jafnvel hunsaðir, svo sem gerðist í tilfelli Lýsingar, en dómurinn sem þá féll hefði getað forðað þúsundum frá gjaldþroti og vonarvöl. En ríkisstjórnin sýndi með því að hunsa þann dóm, nokkuð sem er víða ólöglegt og hefði eitt og sér nægt sem brottrekstrarsök fyrir ríkisstjórnina, þar sem þrískipt vald er tryggt með lögum í stjórnarskrá, sitt rétta eðli og fyrir hvern hún starfar í raun og veru. Annað hvort voru þau aldrei vinstrimenn, heldur bara Trójuhestar, eða þá eru þau pólítískar mellur sem einhver ill öfl borga undir borðið. Aðrar skýringar standast ekki nánari athugun. Síst af öllu gjammið í nýju trúarbrögðunum hans Steingríms sem hafa gert Davíð Oddsson að allsherjar grýlu og djöfli sem allt sem miður hefur farið í veraldarsögunni er að kenna, og gerir hans menn stikkfría frá öllu og þeir geta jafnvel notað tilvist Davíðs Oddssonar sem afsökun til að fremja hvaða glæp sem er "Skrattinn freistaði mig" = "Davíð neyddi mig til þess", en einungis einfeldningar taka svona bókstafstrú og óráðshjal trúanlegt, burtséð frá hvað manni þykir persónilega margt miður í fari pólítíkur Davíðs Oddsonar. Sannleikurinn blasir við. Þau eru kannski lýðræðislega kjörin, en það var Hitler nú líka. Lýðræðissinnar eru þau ekki, það hafa þau sýnt með að marg brjóta á fólkinu í landinu, jafnvel í trássi við Hæstarétt, sem þau óvirða eins og þeim sýnist. Hvort sem þau eru að þiggja mútur eða annað kemur til, þá eiga þau ekki skilið að sitja þarna lengi. Sagan sýnir að það að láta fasista og elítista sem óvirða sitt eigið fólk sitja í skjóli "lýðræðis" er stórhættulegt og veit ekki á gott. Við höfum valið, annað hvort kveðjum við land vort og þjóð bless, frelsi vor og mannréttindi, kjör og auðlindir......eða ríkisstjórn þessa. Við höfum þetta val ekki mikið lengur. Tíminn líður hratt að úrslita stund. Láttu ekki þitt eftir liggja http://www.utanthingsstjorn.is

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.11.2010 kl. 01:40

2 identicon

Er nú ekki komin tími til að leggja þetta félag niður, enda hugmyndafræðin ónýt.

Valsól (IP-tala skráð) 5.11.2010 kl. 05:25

3 identicon

Ef Valsól á við Samfylkinguna þá jú eflaust mætti leggja þann félagsskap niður enda jafnaðarstefnan búin að keyra þetta samfélag í strand. Fyrst 2008 og aftur núna 2010.

Andri (IP-tala skráð) 6.11.2010 kl. 03:48

4 identicon

Samfylkingin hefur komið á meiri ójöfnuði en  þekkst hefur á Íslandi í næstum 100 ár. Það er orðskrípi að tala um stefnu hennar sem "jafnaðarstefnu", þó Hitler hafi kannski sjálfur kallað sig sósíalisti, þjóðernis- sósíalista nánartiltekið, þá eru það verkin sem tala en ekki orðskrúðið!

Anti Euro-Trash (IP-tala skráð) 6.11.2010 kl. 17:36

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Sósíalistar og fasistar eru tvær greinar af sama trjástofni. Sósíalistar vilja taka fé frá þeim sem afla þess og færa þeim sem tilheyra ákveðnum "stéttum". Fasistar vilja taka frá frá þeim sem afla þess og færa fólki af ákveðnum "kynstofnum".

Whether we should wish that more of the good things of this world should go to some racial élite, the Nordic men, or the members of a party or an aristocracy, the methods which we shall have to employ are the same as those which could ensure an equalitarian distribution.

http://mises.org/store/Road-to-Serfdom-The-P252.aspx

Geir Ágústsson, 11.11.2010 kl. 10:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband